Information about the event

Time
10:00
Price
Free
Target
Young people
Past Events

Sumarsmiðja 13-16 ára | Gamlar flíkur fá nýtt líf

Monday August 10th 2020 - Friday August 14th 2020

**Fullbókað er í smiðjuna en þið getið skráð ykkur á biðlista með því að senda tölvupóst til Guðrúnar Baldvinsdóttur, gudrun.baldvinsdottir@reykjavik.is **

Getur ónýta lakið þitt orðið að striga fyrir listaverkið þitt? Getur gamla prjónapeysan þín sem passar ekki lengur orðið ný flík og þín eigin hönnun? Geta gömlu gallabuxurnar þínar sem hafa rifnað verið klipptar niður og notaðar til að skapa nýtt efni? Það er mikilvægt að við sjáum möguleika í að endurnýta og endurskapa efni. Fata- og textílframleiðsla er mengandi og við hendum alltof miklu frá okkur. Við viljum ekki að jörðin okkar endi sem einn risastór ruslahaugur svo við skulum vera hluti af lausninni!
Í þessu námskeiði verður farið yfir helstu textílaðferðir með endurnýtingu í huga. Lögð er áhersla á að þátttakendur sýni skilning á mikilvægi á umhverfisvænum textíl og læri aðferðir til að endurskapa efni.  Umsjón hefur Tanja Huld Leví fatahönnuður.

Námskeiðið fer fram dagana 10.-14. ágúst milli kl. 10-12 í OKinu í Gerðubergi. Smiðjan er ókeypis en skráning er nauðsynleg hér fyrir neðan þar sem takmörkuð pláss eru í boði. 
Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreyttar sumarsmiðjur fyrir börn og ungmenni í sumar, sjá nánar hér. 

Nánari upplýsingar veitir: 

Guðrún Baldvinsdóttir
gudrun.baldvinsdottir@reykjavik.is
S: 661-6178