
Leikhúskaffi | Njála á hundavaði
Information about the event
Time
17:30 - 19:00
Price
Free
Library
Target
Adults
Past Events
Leikhúskaffi | Njála á hundavaði
Tuesday October 26th 2021
Borgarbókasafnið í Kringlunni og Borgarleikhúsið hafa boðið upp á leikhúskaffi í nokkur ár þar sem leiksýningar eru kynntar fyrir áhugasömum stuttu fyrir frumsýningu.
Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen segja gestum frá uppsetningu Borgarleikhússins á verkinu Njála á hundavaði en þeir leika í sýningunni, semja tónlistina og eru uppistaðan í hljómsveitinni Hundur í óskilum. Í kjölfar kynningarinnar verður rölt yfir í leikhúsið þar sem fjallað verður um og skoðuð leikmynd leikritsins og önnur umgjörð. Í lokin býðst þátttakendum 10% afsláttur á miðum á sýninguna.
Viðburðurinn er ókeypis, öll velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Guttormur Þorsteinsson, bókavörður
guttormur.thorsteinsson@reykjavikis | s. 411 6204