Birta Líf Kristjánsdóttir á Fræðakaffi

Information about the event

Time
16:30 - 17:30
Price
Free
Target
Adults
Past Events

Fræðakaffi | Hvernig er veðrið?

Monday September 25th 2023

Um fátt er meira talað á Íslandi en veðrið, enda sjaldnast tíðindalaust í þeim efnum og tíðarfar getur beinlínis haft áhrif á skap og líðan fólks. Oft getur líka verið gott að grípa til þessa umræðuefnis, ef aðstæður eru vandræðalegar og brjóta þarf ísinn. Og ýmis fyrirbæri í háloftunum eru mögnuð og áhrifamikil að sjá. Sumir halda meira að segja veðurdagbækur og hefur svo verið hér á landi öldum saman.

Veðurfræðingar eru stundum álitnir bera persónulega ábyrgð á veðurfarinu, sem er auðvitað í hæsta máta ósanngjarnt, þeir eru sérfróðir um himinhvolfin og hjálpa okkur að lesa í skýin, undirbúa okkur undir það sem í vændum er.

Birta Líf Kristinsdóttir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands spjallar um fræðigrein sína og áhuga Íslendinga á veðri.

 

Frekari umsjón veitir:
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is | 411 6230