
Information about the event
Sýning | Vísindatímarit
Af hverju er svefn mikilvægur? Hvaða áhrif hefur tónlist á heilann? Af hverju eru sumir stærri en aðrir?
Á sýningunni má finna svar við þessum spurningum og mörgum öðrum.
Nemendur úr 10. bekk Víkurskóla fagna með stolti útgáfu sínum fyrstu vísindatímaritum .
Í tímaritunum eru vísindagreinar sem unnar voru í náttúrufræði eftir áhugasvið hvers og eins í tengslum við umræðu um mannslíkamann. Greinarnar fræða um áhugaverð og spennandi viðfangsefni sem snerta heilsu okkar allra. Á sýningunni eru tímarit nemenda aðgengileg til lesturs ásamt sýnishornum og fleiri vísindagreinum.
Nánari upplýsingar veita:
Veronica Piazza, kennari við Víkurskóla
Veronica.Piazza@reykjavik.is
Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Borgabókasafninu Spönginni
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is