Pappírsblóm eftir Catherine Oxley
Pappírsblóm eftir Catherine Oxley

Information about the event

Time
18:00 - 21:00
Price
Free
Target
Adults
Language
enska
Arts & Crafts

Pappírsblómasmiðja | Búum til Garðasól

Thursday September 19th 2024

Langar þig að læra að búa til fallega Garðasól úr ítölskum gæða kreppappír sem mun gleðja augað um ókomin ár?

Catherine Oxley frá BOUQ Paper Flowers leiðir smiðju í gerð pappírsblóma. Smiðjan er fyrir byrjendur sem lengra komna.

Hið dásamlega íslenska sumar með öllum sínum litbrigðum og miðnætursól var Catherine innblástur þegar hún valdi íslensku Garðasólina fyrir þessa smiðju. Þátttakendur fá leiðsögn í tækninni sem snýr að gerð pappírsblóma; hvernig hægt er að móta þau sem best svo þau endurspegli lifandi blómin.  

Catherine Oxley er kanadíska listakonan á bak við BOUQ Paper Flowers og býr yfir rúmlega 25 ára reynslu í tísku-, sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði. Fjallað hefur verið um verk hennar í vinsælasta morgunsjónvarpsþætti Kanada, City TV’s Cityline og tímaritum eins og La Botanica (NY  Milan), Food & Drink, Wedding Bells og Today’s Bride.

Smiðjan mun fara fram á ensku og er ókeypis en skráning er nauðsynleg og hefst mánudaginn 2. september hér að neðan.

Allt efni er innifalið.
Unnið verður með ítalskan gæða kreppappír frá Carte Fini en þátttakendur eru beðnir um að taka með sér beitt skæri.  Takmarkað magn af skærum verður til sölu á staðnum.  

Viðburðurinn á Facebook

 

Nánari upplýsingar veitir:

María Þórðardóttir, sérfræðingur
maria.thordardottir@reykjavik.is | s: 411 6160