Information about the event

Time
13:00
Price
Free
Target
Young people
Ages
13-16
Language
íslenska
Children
Young people

Sumarsmiðja | Skapandi skrif með Emblu Bachmann

Monday June 29th 2026 - Wednesday July 1st 2026

Embla Bachmann  mun leiða smiðju í skapandi skrifum. Frá unga aldri hefur Embla verið mikill bókaormur. Hún heillaðist fljótt af ævintýraheimi bókanna og ellefu ára gömul ákvað hún að setja sér það markmið að skrifa sjálf sögur og ljóð. Embla hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir skrif sín. Hún hefur gefið út þrjár bækur sem hafa notið mikilla vinsælda Paradísareyjan, Kærókeppnin og Stelpur stranglega bannaðar.

Embla kennir ungmennum hvernig á að leggja grunninn að sinni eigin skáldsögu og mun fara yfir hvert atriði í sköpunarferlinu. Þátttakendum er einnig velkomið að koma með sögur sem þau eru þegar byrjuð að vinna með og fá aðstoð við að þróa þær áfram. Undir lok námskeiðsins verða öll komin með beinagrind að sinni eigin bók og verkfærakassa til að halda áfram.

Lögð verður áhersla á að hafa gaman og að hver og einn þátttakandi fái að njóta sín.

Tími: Smiðjan stendur yfir í þrjá daga frá mánudeginum 29. júní - 1. júlí milli klukkan 13:00-15:00

Aldur: 2010, 2011, 2012 og 2013

Skráning hefst 28. apríl kl. 13 á Abler.

Sjá viðburð á facebook

Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411-6170