Sögur - tónsmíðar

Information about the event

Time
11:15 - 13:15
Price
Free
Target
Children
Ages
börn í 4. - 7. bekk
Language
íslenska
Children

FULLBÓKAÐ! Sögur | Tónsmíðar

Saturday November 9th 2024

Staðsetning: Verkstæðið, 5. hæð

Borgarbókasafnið í samstarfi við Sögur býður börnum að læra að búa til sitt eigið lag undir leiðsögn Ingvars Alfreðssonar.

Námskeiðið er þrjú skipti, klukkutíma í senn, laugardagana 9.  16. og 23. nóvember. Kennt verður í litlum hópum.

Hópur 1: kl. 11:15-12:15 - Fullbókað!
Hópur 2: kl. 12:15-13:15 - Fullbókað!
Hópur 3: kl. 13:15-14:15 - Fullbókað!

 

Námskeiðslýsing:

  • 9. nóvember: Farið er yfir grunn í tónlistar- og textagerð og í hugmyndavinnu
  • 16. nóvember: Börnin vinna að tónlist sinni undir leiðsögn Ingvars
  • 23. nóvember: Börnin leggja lokahönd á lagið sitt og undirbúa það til sendingar í samkeppni Sagna.

Ingvar er sjálfstætt starfandi tónlistarmaður, píanóleikari, útsetjari og höfundur. Hann útskrifaðist úr frá Berklee College of Music í Boston, þar sem hann lauk námi í “Contemporary Writing and Production”- sem er blanda af útsetningum, upptökustjórn og lagasmíðum. Hann hefur víða komið við sem hljóðfæraleikari, bæði á sviði og í sjónvarpi og er til að mynda hljómsveitarstjóri og útsetjari Fiskidagstónleikanna á Dalvík, auk annarra stórtónleika. Hann kennir upptökustjórn og samspil Í MÍT og FÍH og starfar einnig sem meðleikari í söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz. Þá stjórnar hann barna- og unglingakórum Vídalínskirkju sem og Gospelkór Jóns Vídalíns.

Viðburðurinn á Facebook

 

Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146