Information about the event

Time
13:00 - 15:00
Price
Free
Target
Children
Ages
10+
Language
Íslenska
Past Events

Haustfrí | Perlur og Morskóði

Thursday October 24th 2024

Morskóði er samskiptamáti þar sem mislöng hljóð, ljósmerki eða önnur tákn eru notuð í stað bókstafa og tölustafa.

Í þessari smiðju verða það perlur sem koma í staðinn fyrir bókstafi og tölustafi. Anna Júlía Friðbjörnsdóttir myndlistarkona kennir okkur að skrifa skilaboð og setningar í morskóða, þræða perlur á band og fela þannig skilaboð í hálsfestum, armböndum og óróum.

Anna Júlía Friðbjörnsdóttir er myndlistarmaður starfandi í Reykjavík. Hún vinnur þvert á miðla og velur efni og aðferðir út frá eðlislægum eiginleikum og menningarlegu samhengi í verkum sem taka mið af samtíma og sögu.

Ókeypis aðgangur!

Kynnið ykkur heildardagskrá Borgarbókasafnsins í haustfríinu!

Viðburður á Facebook

 

Nánari upplýsingar veitir:

Vala Björg Valsdóttir, sérfræðingur
vala.bjorg.valsdottir@reykjavik.is | 411 6270