Information about the event

Time
10:00
Price
Free
Target
Children
Ages
9-12 ára
Language
Íslenska
Children
Arts & Crafts

FULLBÓKAÐ! Sumarsmiðja | Svakalega sögusmiðjan - teiknismiðja með Blævi

Monday August 11th 2025 - Wednesday August 13th 2025

Hvað er undir og yfir jörðinni? Sköpum allskyns draumaheima undir og yfir yfirborðinu. Litlar lífverur og persónur leynast svo bak við laufblöð og eiga sín heimkynni þarna. Blöðin tengjast svo og búið verður til langt listaverk á veggjum bókasafnsins. 

Blær Guðmundsdóttir er barnabóka- og myndhöfundur. Hún gaf frá sér bókina Sipp, Sippsippanipp og Sippsippanippsippsúrumsipp - systurnar sem ætluðu ekki að giftast prinsum og hefur einnig myndlýst fjölda barnabóka, s.s. bækurnar um Stúf, Holupotvoríur, Dreddfúlíur, Orð eru ævintýri og Kærókeppnina. Hún kennir einnig börnum að skrifa sögur og teikna í Svakalegu sögusmiðjunni. 

Aldur:  börn fædd 2013, 2014, 2015 og 2016.
Tími: Smiðjan stendur yfir í þrjá daga, 11.-13. ágúst kl. 10:00-12:00.
 
Fullbókað er í smiðjuna, enn eru nokkur laus pláss á biðlista, skráning á  sumar.vala.is
Hér má sjá lista yfir allar sumarsmiðjur Borgarbókasafnsins. 

Nánari upplýsingar veitir:
Vala Björg Valsdóttir, sérfræðingur barna-og unglingadeild
vala.bjorg.valsdottir@reykjavik.is | 411 6270

Materials