Information about the event

Time
11:00
Price
Free
Target
Children
Ages
9-12
Language
Íslenska
Children
Arts & Crafts
Creative Technology

FULLBÓKAÐ! Sumarsmiðja | Hreyfimyndagerð

Wednesday June 18th 2025 - Friday June 20th 2025

Í smiðjunni fá börn tækifæri til að læra undirstöðuatriði hreyfimyndagerðar, hanna eigin persónur, leikmyndir og umbreyta hugmyndum sínum í lifandi sögur. Með stop-motion tækni er hægt að blása lífi í hversdagslega hluti og skapa allskonar sögur, möguleikarnir eru endalausir. 

Lista og- hreyfimyndagerðakonan Rakel Andrésdóttir mun leiða smiðjuna en hún lærði myndlist í Listaháskóla Íslands og hreyfimyndagerð í FAMU í Tékklandi. Rakel hefur sýnt teiknimyndirnar sínar á kvikmyndahátíðum víðsvegar um heiminn og hlaut Edduverðlaunin í ár í flokknum heimildastuttmynd ársins fyrir mynd sína Kirsuberjatómatar.Hún starfar sem kvikari fyrir íslenska barnaþætti ásamt því að kenna námskeið í Myndlistarskóla Reykjavíkur.

 

Aldur:  Börn fædd 2013, 2014, 2015 og 2016.
Tími: Smiðjan stendur yfir í þrjá daga, 18.-20. júní kl. 11:00-13:00.
 
Fullbókað er í smiðjuna og á biðlista.
Hér má sjá lista yfir allar sumarsmiðjur Borgarbókasafnsins. 

 

Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdóttir@reykjavik.is | 411-6170