
Information about the event
Krílastundir í Kringlunni | Talmeinafræðingur
ATHUGIÐ BREYTT TÍMASETNING!
Þriðja föstudag í mánuði eigum við saman notalega morgunstund á Borgarbókasafninu Kringlunni. Njótum samveru, spjöllum og leikum með litlu krílunum.
Hér skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum með lítil börn og skiptast á sögum um lífið og tilveruna. Dagskráin er miðuð út frá börnum á aldrinum 0-3 ára en auðvitað eru öll velkomin.
Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna, sem hægt er að glugga í á safninu og korthafar geta gripið með sér heim.
Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!
Krílastundirnar hefjast klukkan 10:00. Athugið að safnið opnar ekki fyrr en 11:00, svo starfsmaður verður við dyrnar og hleypir ungbörnum og fylgifiskum inn.
17. janúar - FRESTAÐ
24. janúar
21. febrúar
14. mars - Talmeinafræðingur kíkir í heimsók
21. mars - FLÝTT TIL 14. mars
25. apríl - Hvað hefur bókasafnið uppá að bjóða?
16. maí - Bjróstagjafaráðgjafar gefa góð ráð
Heitt kaffi og te í boði.
Sjáumst!
Viðburður á Facebook
Nánari upplýsingar veitir
Brynhildur Lea Ragnarsdóttir, barnabókavörður
brynhildur.lea.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411-6200