Nútíminn ber að dyrum í Íran eftir aldalanga stöðnun. En þegar heittrúarbylgjan skellur á landinu, hláturinn þagnar og skothríð tekur við af bænakalli bregðast íbúar í Húsi moskunnar við á ólíkan hátt. Kröftug og hlý saga af átakanlegum örlögum einnar fjölskyldu og heillar þjóðar á umbrotatímum; margföld metsölubók. (Heimild: Bókatíðindi)