![Ljóðakaffi | Freyðandi ljóð - ungskáld Ljóðakaffi | Freyðandi ljóð - ungskáld](https://borgarbokasafn.is/sites/default/files/styles/ding_secondary_large/public/title_image/event/preview-lightbox-freydandi_ljod_mynd01-01_0.jpg?itok=PsT85ZQr)
Information about the event
FRESTAÐ Ljóðakaffi | Freyðandi ljóð
Á Borgarbókasafninu í Kringlunni verður boðið upp á freyðandi ljóð og léttar veitingar. Júlía Margrét Einarsdóttir sér um ljóðakaffið þar sem þrjú skáld í yngri kantinum flytja ljóð sín: Arndís Lóa Magnúsdóttir, Brynja Hjálmsdóttir og Dagur Hjartarson.
Arndís Lóa Magnúsdóttir er fædd 1994 en hún fékk nýræktarstyrk til að gefa út ljóðabókina Taugaboð á háspennulínu. Brynja Hjálmsdóttir, fædd 1992, hefur gefið út ljóðabókina Okfruman og birt ljóð í tímaritum og Dagur Hjartarson sem er fæddur 1986 hefur meðal annars gefið út ljóðabækurnar: Fjölskyldulíf á jörðinni, Því miður og Heilaskurðaðgerðin. Júlía Margrét Einarsdóttir er fædd 1987 og hefur gefið út skáldsöguna Drottningin á Júpíter og ljóðabókina Jarðarberjatungl, auk annarra skrifa.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 30 manns
Skráning nauðsynleg: Skráningarform neðst á síðu.
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Nánari upplýsingar veita:
Guttormur Þorsteinsson, bókavörður
guttormur.thorsteinsson@reykjavikis | s. 411 6204
Júlía Margrét Einarsdóttir
juliamargret23@gmail.com | s. 820 7486