Information about the event

Time
14:00 - 16:30
Price
Free
Target
Everyone
Language
-
Arts & Crafts
Talks & discussions

Saumum saman Ísland

Saturday March 14th 2026

Taktu þátt í einstakri bútasaumssmiðju þar sem við tökum höndum saman til að skapa efni sem tengir okkur öll. Á meðan við saumum saman efnisbúta tengjum við líka saman sögur úr hverfinu okkar og tengjumst í gegnum samtöl. Hvernig líður okkur? Hvar viljum við sjá breytingar í umhverfi okkar?

Í þessari skapandi smiðju rannsökum við umhverfi okkar og tengjumst – bút fyrir bút. Komdu og settu þitt mark á sameiginlegt bútasaumsteppi sem segir sögu hverfisins þíns! Listakonan Christalena Hughmanick leiðir smiðjur.

Allur efniviður verður á staðnum, skráning er óþörf og þátttakendum frjálst að mæta eins oft og þeir vilja. Öll velkomin óháð aldri og tungumáli!



Nánari upplýsingar veitir:
Christalena Hughmanick
christalena.hughmanick@gmail.com

Þetta verkefni er styrkt af Þróunarsjóði innflytjendamála