Vísindakakó fyrir forvitna krakka

Information about the event

Time
13:00 - 14:00
Price
Free
Target
Children
Language
íslenska
Children
Learning

Vísindakakó fyrir forvitna krakka

Saturday March 8th 2025

Vísindakakó er viðburður fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vísindafólk, heyra hvað það er að rannsaka og hvernig það er að starfa í vísindum.

Á vísindakakó gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu í óformlegu spjalli um þær vísindarannsóknir sem viðkomandi leggur stund á og ekki síst fá að spyrja ótal spurninga um allt það sem við kemur því að starfa við rannsóknir og vísindi.

Á þessu Vísindakakói mun Friðrika Björk Þorkelsdóttir, sérfræðingur í notendaprófunum á sviði stoðtækja hjá Össur, segja gestum frá rannsóknum tengdum stoðtækja á borð við gervifætur.

Gert er ráð fyrir að viðburðurinn sé um ein klukkustund og að sjálfsögðu verður boðið upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast.

Vakin er athygli á því að Vísindakakó verður haldin alls tíu sinnum í vetur á mismunandi bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin

Heildardagskrá fyrir Vísindakakó má sjá á heimasíðu Vísindavöku

Ókeypis aðgangur og öll velkomin!

Viðburður á Facebook

 

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Fjölnir Ármannsson, kynningarfulltrúi RANNÍS
david.f.armannsson@rannis.is | 515 5818