Um þennan viðburð
Anime I Klúbbur
Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 13-16 ára sem hafa brennandi áhuga á Anime.
Í klúbbnum gerum við margt skemmtilegt eins og að gera merki, teikna, spila borðspil, cosplay og spjalla um anime svo eitthvað sé nefnt.
Svo verða að sjálfsögðu skipulagðar bíósýningar, alls kyns smiðjur, eða bara hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera!
Leiðbeinendur klúbbsins eru frá Íslenska myndasögusamfélaginu og Borgarbókasafninu og við leggja okkur sérstaklega fram að taka vel á móti öllum og okkar mottó er að það sé hvergi pláss fyrir fordóma.
Klúbburinn hittist vikulega í Gerðubergi. Það er auðvitað ekkert þátttökugjald en skráning er nauðsynleg. Vinsamlegast sendið: Nafn, netfang og símanúmer til holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir Verkefnastjóri viðburða
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is