Þráður, Sigrún Ása Sigmarsdóttir
Sigrún Ása Sigmarsdóttir

Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Tungumál
alþjóðlegt tungumál listarinnar
Sýningar

Sýning | Þráður

Mánudagur 10. júní 2024 - Miðvikudagur 14. ágúst 2024

Náttúruleg form mynda rauða þráðinn í myndverkum Sigrúnar Ásu Sigmarsdóttur.  

Þar er sterk vísun í lífrænan plöntuheim og hið smágerða og fínlega er kallað fram með beitingu sterkra lita og áferðar. Ýktar línur birtast einnig.

Auga, snertiskyn og tilfinningar eru oftar en ekki mælitæki fyrir ákvarðanir. Litir eru valdir eftir sterkastri litalöngun hverju sinni, listin er tækifæri til að hlusta á eigið innsæi.

Sigrún Ása segir:

„Leikur og list er mín leið til að vaxa og búa til nýar sögur um tilveruna. Sterk tenging við náttúruna vekur stöðuga forvitni, undrun, vellíðan og gefur innblástur. Sköpun mín birtist með ljóðum, vatnslitum, útsaumi, teikningu, málverki og margvíslegum aðferðum og verkfærum, ég æfi mig, reyni nýja hluti, leik mér og læri. Ég vil að fólk taki eftir upplyftingu og litagleði í huga sínum við skoðun á verkunum, að þau geri öðrum kleift að finna það sem ég finn, að dvelja með gleði í vakandi vitund.“

Vefsíða Sigrúnar Ásu

fb-síða Sigrúnar Ásu

Verið öll velkomin á opnun í Spönginni, mánudag 10. júní kl. 16-18.

Sýninguna má skoða á opnunartíma safnsins, mán-fim 10-18 og fös  11-18.

Athugið að safnið verður lokað 6. júlí - 28. júlí.

 

Nánari upplýsingar veita:
Sigrún Ása Sigmarsdóttir
sigrunasasig@gmail.com | 663 5763

Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is | 411 6240