Um þennan viðburð
Gjafaskiptimarkaður Loftslagskaffis Íslands
Taktu þátt í gjafaskiptum Loftslagskaffis á Borgarabókasafninu Grófinni
Notað verður nýtt. Átt þú dót sem þú notar ekki lengur? Á Gjafaskiptimarkaði Loftslagskaffis tökum við glöð á móti hlutum eða leikföngum sem gætu nýst öðrum sem jólagjafir eða skógjafir.
Öllum er velkomið að koma með gjafir á borðið eða taka með sér gjöf. Áherslan er á það sem glatt gæti barn á jólunum; leikföng, spil, bækur, skógjafir og þess háttar. Eða eitthvað til skrauts eða nytsamlegt fyrir heimilið; kerti, rammar, plöntur, vasar, skraut, bækur o.s.fr.v.
Svona virka gjafaskiptin:
- Komdu með eitthvað ef þú vilt
- Taktu eitthvað ef þú vilt
- Vinsamlegast ekki pakka gjöfunum inn
- Föt og stórir/þungir hlutir afþakkaðir
- Hægt er að taka gjöf án þess að koma með gjöf
Athugið að hlutirnir þurfa að vera hreinir og í nothæfu standi.
Öll velkomin, þátttaka ókeypis. Verslum minna og deilum meira.
Opnunarviðburður á Facebook
Gjafaskiptimarkaður 12.-15. desember á Facebook
Nánari upplýsingar um verkefnið Loftslagskaffi veita:
Marina Ermina, marina@greenwellbeing.org
Marissa Sigrún Pinal, msp5@hi.is