Gagnasjálfið: Félagsleg flokkun - innsetning
Líf þitt á netinu er undir eftirliti.
Upplýsingum um hvernig þú hagar þér á netinu er safnað, þær eru greindar og notaðar til að spá fyrir um hvað þú gerir næst. Tilgangurinn er að móta hvað þú sérð og kaupir, hvernig þú hugsar, finnur til, hefur samskipti og tekur þátt í samfélaginu.
Sýningin kynnir þig fyrir þremur einstaklingum í gegnum mismunandi víddir. Það sem er á yfirborðinu, það sem er falið og verðmætin sem verða til fyrir eigendur vettvanganna sem móta okkur.
Settu á þig gleraugun og heyrnartólin og hið óséða verður sýnilegt.
Kynntu þér gagnasjálfið.
Umsjón: Samtök um mannlega tækni og Alexander Jean Fontenay
Opið alla daga Framtíðarfestivalsins, 1. - 14. mars
Verkstæðið 5. hæð
Viðburðurinn á Facebook
Framtíðarfestivalið fer fram 1. mars til 14. mars 2026 á Borgarbókasafninu Grófinni (í miðbænum).
Allir viðburðirnir eru ókeypis og opnir öllum. Dagskrána má finna HÉR.
Frekari upplýsingar:
Fanny Sissoko, Verkefnastjóri Inngildingar og fræðslu
fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is
