
Um þennan viðburð
Tími
11:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Markaður
Búningaskiptimarkaður
Mánudagur 9. febrúar 2026 - Miðvikudagur 18. febrúar 2026
Vantar búning fyrir öskudaginn eða eru skápar fullir að gömlum búningum sem ekki er verið að nota?
Við ætlum að bjóða upp á búningaskiptimarkað á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal í ár!
Það verður fataslá frammi á safninu þar sem hægt er að koma með búninga og velja búning sem ykkur líst vel á. Það er velkomið að taka sér búning án þess að koma með annan í staðinn og eins má gefa búninga án þess að taka aðra af slánni.
Allir búningar verða að vera hreinir og í nothæfu ástandi.
Nánari upplýsingar veitir:
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is