100 ára afmæli | Borgarbókasafnið Grófinni
Hjartanlega velkomin á Borgarbókasafnið Grófinni í tilefni 100 ára afmælisins. Í boði er skemmtileg dagskrá fyrir unga sem aldna; bókmenntaganga, tónlist, föndur, leiðsagnir og kaffi, djús og bollakaka í boði fyrir öll sem vilja njóta dagsins með okkur.
Í boði allan daginn frá kl. 11:00-17:00:
- Föndur fyrir alla aldurshópa.
- Sjálfu stöð. Veldu fylgihluti og smelltu af.
- Stöku-staður á annarri hæð. Botnaðu fyrri part eða semdu þína eigin stöku.
- Myndir og minningar úr 100 ára sögu safnsins.
DAGSKRÁ
13:30-14:00
Leiðsögn um safnið
Leiðsögn um safnið þar sem m.a. verður litið inn í starfsmannarými og rómaða kaffiaðstöðu á sjöttu hæð.
13:30
Pakkaleikur
Það er ekki afmæli án pakkaleiks!
Ungum lestrarhestum gefst tækifæri til að vinna léttlestrarbækur, myndabækur og forvitnilegar fræðibækur.
14:00
Afmæliskaffi og -kökur
15:00-15:30
Unnsteinn Manuel og Hermigervill troða upp
15:00-16:30
Bókmenntaganga með Kristínu Svövu Tómasdóttur og gestum
Lesið verður úr skáldsögum, endurminningabókum og ljóðum sem tengjast dramatískum og skemmtilegum Reykjavíkursögum af ástum, dauða og leynivínsölu.
15:30-16:00
Leiðsögn um safniðLeiðsögn um safnið þar sem m.a. verður litið inn í starfsmannarými og rómaða kaffiaðstöðu á sjöttu hæð
Smellið hér til að skoða afmælisdagskrána í öllum söfnum okkar helgina 15. og 16. apríl.
Nánari upplýsingar veitir:
Barbara Helga Guðnadóttir
barbara.helga.gudnadottir@reykjavik.is | 411 6100