Fræðsla
Kaffistundir
Spjall og umræður
Plöntuskipti | Blóm og græðlingar
Sunnudagur 26. september 2021
Þennan sunnudag eru allir blómaunnendur velkomnir á bókasafnið með plöntur, græðlinga (afleggjara) og fræ til að skiptast á við aðra ræktendur.
Inni á safninu verður pláss fyrir inniblómin en úti á svölunum er hægt að vera með garðplöntur.
Allir sem áhuga hafa plöntum fyrir heimilið eða í garðinn, eru hvattir til að koma og gera góð skipti. Þeir sem ekkert hafa til skiptanna eru líka velkomnir það er aldrei að vita nema hægt sé að fá plöntu, afleggjara eða fræ gefins.
Einnig er þetta upplagt tækifæri fyrir þá sem eiga umfram, að deila með öðrum.
Nánari upplýsingar:
Katrín Guðmundsdóttir
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is
411 6250 / 892 0326