
Um þennan viðburð
Notkun gervigreindar í atvinnuleit á Íslandi: Vinnustofa um ferilskrár og kynningarbréf
Notkun gervigreindar í atvinnuleit á Íslandi: Vinnustofa um ferilskrár og kynningarbréf
Staðsetning: 1. hæð – Torgið
Að smíða ferilskrá og kynningarbréf er nú þegar flókið. Að gera það í nýju landi, án þess að gera sér grein fyrir hverju vinnuveitendur eru að leitast eftir, gerir það enn flóknara.
Þessi smiðja snýst um að byggja upp þá þekkingu. Við munum skoða hvernig gervigreindartól líkt og ChatGPT, Gemini og Claude geta aðstoðað þig við skrifin og bætt ferilskrána og kynningarbréfið þitt, og hvenær hvert þeirra nýtist best. Enn mikilvægara, þá munt þú læra að lesa inn á það sem tólin skapa: hvaða orð eru veigamikil, hvað á að stytta, viðeigandi lengd og hvernig á að gera reynslu þína sýnilega á síðunni.
Markmiðið er ekki að láta gervigreindartólin skrifa allt fyrir þig. Markmiðið er að læra hvernig á að nota þau á réttan hátt.
Daniel Alberto Lopez er nemi í tölvunarfræði með fjölbreyttan bakgrunn úr atvinnulífinu. Hann hefur sjálfur farið í gegnum atvinnuleitarferlið á Íslandi og veit af eigin raun hvað það er sem gerir það erfitt fyrir innflytjendur.
Viðburðurinn fer fram á ensku og er ókeypis og opinn öllum. Komdu með fartölvu ef þú getur, annars dugar snjallsími líka.
Frekari upplýsingar veita:
Alexander Sigurðarson, sérfræðingur
alexander.sigurdarson@reykjavik.is
Ísak Gabríel Regal, bókavörður
isak.gabriel.regal@reykjavik.is