Sýning | Litir, efni, form - og börn
Elstu börnin í leikskólanum Hulduheimum í Grafarvogi fóru á námskeið hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík á Korpúlfsstöðum síðastliðið haust. Þar spáðu þau í liti, efni og form.
Afraksturinn má sjá á líflegri sýningu sem nú stendur yfir á bókasafninu í Spönginni:
Myndir málaðar með litum gerðum úr eggjarauðu, turmerik-kryddi, paprikudufti, rauðrófudufti, basilíku, spínati og súkkulaði.
Myndir þar sem útlínur líkamans (í fullri stærð) mynda abstraktmynstur.
Turnar sem jafnframt eru vatnsrennibrautir.
Skúlptúrar gerðir úr efniviði sem meðal annars er sóttur er í fjöruna: skeljar, steinn, sandur, sjór og gifsduft.
Verið öll velkomin!
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Umsjón:
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is