
Um þennan viðburð
Sumarteiknismiðja með Blævi
Finnst þér gaman að teikna? Komdu í teiknismiðju!
Við munum gera alls kyns teikniæfingar, myndasögur, leika okkur og hafa gaman.
Sumarsmiðjan verður að þessu sinni í boði fyrir börn fædd 2014-2017.
Smiðjan verður 15. til 19. júní frá klukkan 10:00-12:00. Það verður frí 17. júní.
Blær Guðmundsdóttir teiknari og rithöfundur hefur teiknað í fjölda barnabóka. Hún hefur einnig áralanga reynslu af að kenna börnum að skrifa sögur og teikna í Svakalegu sögusmiðjunni, sem á aðsetur í Borgarbókasafninu og Bókasafni Mosfellsbæjar.
Teikningar Blævar má m.a. finna í bókunum Sipp, Sippsippanipp og Sippnippanippsippsúrumsipp, Voðagerði: Lilja, Orð eru ævintýri, Holupotvoríur alls staðar!, Dreddfúlíur, flýið!, Kærókeppninni, Leyndardómum Valþjófsstaðahurðarinnar og öllum Stúfsbókunum.
Verk Blævar hafa hlotið margar tilnefningar s.s. til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar, Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Hagþenkisverðlauna og Sögur - verðlaunahátíð barnanna fyrir myndlýsingar. Hún fékk FÍT-verðlaun fyrir teikningar í Sipp og hlotið Vorvindaverðlaun IBBY á Íslandi fyrir framlag til barnamenningar.
Skráning verður auglýst síðar.
Nánari upplýsingar veitir:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6230