
Um þennan viðburð
Sögustund við varðeld | Ævar Þór Benediktsson les uppúr glænýrri bók!
Verið velkomin á notalega útisögustund þar sem við kveikjum lítinn varðeld og njótum útiverunnar saman. Hægt verður að ylja sér með heitu kakói á meðan Ævar Þór Benediktsson mun lesa fyrir okkur upp úr nokkrum bókum úr hinu sívinsæla bókaflokki: Þín eigin saga. Bækur þar sem við getum ráðið hvað gerist næst. Sögustundin mun síðan ljúka með upplestri upp úr glænýrri bók eftir Ævar! Skaðræðisskepnur er æsispennandi bók sem gerist í sveit þar sem eitthvað dularfullt er að skilja eftir sig mjög stór fótspor...
Sögustundir við varðeld er viðburðaröð þar sem leitast er við að skapa eftirminnilega söguupplifun í takt við veður og vinda. Viðburðaröðin hlaut styrk frá Bókasafnasjóði.
Hittumst úti fyrir framan neðri inngang Gerðubergs og klæðum okkur eftir veðri.
Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411-6170