
Um þennan viðburð
Smiðja | Krílasirkus
Staðsetning: 1. hæð, Bókatorgið.
Sirkuslistafélagið Hringleikur býður upp á smiðjur fyrir 3-5 ára. Börnum og foreldrum er boðið að prófa ýmis sirkusáhöld, hreyfa sig og leika saman.
Við byrjum á að hita upp saman með söng og svo taka við sirkustrikk, þrautabraut og í lokin er frjáls tími. Hver sirkussmiðja er 45 mínútur að lengd.
Boðið er upp á smiðjur í Grófinni og Gerðubergi fjóra laugardaga í maí. Ókeypis aðgangur!
Sirkussmiðjurnar eru hluti af viðburðaröðinni Side-Flipp, sem hlaut styrk frá Barnamenningarsjóði og Reykjavíkurborg og er haldin í samstarfi við Borgarbókasafnið.
Viðburður á Facebook.
Næstu smiðjur:
Borgarbókasafnið Gerðubergi, 17. maí: 13:30-14:30
Borgarbókasafnið Gerðubergi, 24. maí: 13:30-14:30
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100