Um þennan viðburð

Tími
11:00 - 14:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
8-12
Tungumál
Íslenska
Börn

Roblox Smiðja

Laugardagur 12. apríl 2025

Kennarar frá Skema mæta á bókasafnið og kenna okkur grunninn í Roblox Studio, forritunarumhverfi Roblox. Við lærum að búa til einfalda leiki og snerta á forritun með Lua forritunartungumálinu. Markmið smiðjunnar er að veita þátttakendum þekkingu og verkfæri til þess að halda áfram heima.

Skráning er nauðsynleg og hefst 12. mars hér á heimasíðu borgarbókasafnsins.

Skema sérhæfir sig í kennslu og rannsóknum með sálfræði, kennslufræði og tölvunarfræði að leiðarljósi. Skema stendur fyrir fjölbreyttum tækninámskeiðum og vinnur auk þess að því markmiði að kennsla í forritun verði í boði í grunn- og framhaldsskólum landsins. Undirstöðuatriði aðferðafræðinnar byggja á jákvæðni, myndrænni framsetningu og notkun á þrívíðum forritunarumhverfum til að stíga fyrstu skrefin inn í heim tækninnar.

Viðburður á facebook.

Nánari upplýsingar veitir.
Vala Björg Valsdóttir
vala.bjorg.valsdottir@reykjavik.is