Galdrakarlinn í Oz
Galdrakarlinn í Oz

Um þennan viðburð

Tími
17:30 - 18:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Íslenska
Börn
Fræðsla
Spjall og umræður

Leikhúskaffi | Galdrakarlinn í Oz

Fimmtudagur 8. janúar 2026

Leiksýningin Galdrakarlinn í Oz verður frumsýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins þann 24. janúar næstkomandi. Leikstjórinn Þórunn Arna Kristjánsdóttir er leikhúsgestum að góðu kunn enda stýrði hún tveimur af vinsælustu barnasýningum síðustu ára: Emil í Kattholti og Fíasól gefst aldrei upp. 

Leikhúskaffið er skemmtilegur viðburður fyrir börn og fullorðna og hefst á Borgarbókasafninu Kringlunni þar sem Þórunn leikstjóri segir frá sýningunni. Í kjölfarið verður farið samferða yfir á Stóra svið Borgarleikhússins þar sem ævintýraleg leikmyndin verður skoðuð og boðið upp á umræður og spurningar fyrir áhugasama.

Gestum leikhúskaffis býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna. Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum. Öll eru hjartanlega velkomin!

 

Um sýninguna

Ungir sem aldnir hafa í áratugi heillast af sögunni um stúlkuna Dóróteu sem ásamt hundinum Tótó lendir óvænt í ævintýralandinu Oz þar sem fuglahræður tala, apar fljúga og galdranornir ráða ríkjum. Til að komast aftur heim þarf Dórótea að fylgja gula veginum sem liggur til galdrakarlsins fræga í Oz en hann er sá eini sem getur hjálpað henni. Leiðin til Oz reynist vera þyrnum stráð og hætturnar leynast víða en sem betur fer eignast Dórótea óvænta vini á leiðinni.

Sagan byggir á samnefndri bók Frank Baums sem öðlaðist nýtt líf með frægri kvikmynd frá 1939 þar sem Judy Garland fór með hlutverk Dóróteu. Síðan þá hafa óteljandi útgáfur litið dagsins ljós, bæði á sviði og á hvíta tjaldinu og ekkert lát virðist vera á vinsældum söngleiksins. Þar spillir ekki fyrir tónlistin með ógleymanlegum lögum á borð við Somewhere Over the Rainbow og We’re off to See the Wizard.

Viðburðurinn á Facebook.

Sýningin á vef Borgarleikhússins.

 

Nánari upplýsingar veita:
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204

Emelía Antonsdóttir Crivello
emelia@borgarleikhus.is | 568 5500

Bækur og annað efni