Um þennan viðburð
Ritsmiðja | Viltu skálda og bæta orðaforða þinn?
Lærðu íslensku með skapandi skrifum! Þemað í smiðjunum er veislur, ferðalög, vinátta, tíska og óvæntir atburðir. Þátttakendur lesa örsögur í tíma og ræða efni þeirra. Síðan verður nemendum leiðbeint við ritun einfalds texta á íslensku. Þeir sem vilja geta deilt textum sínum í lok hverrar ritsmiðju og þegar allar fjórar lotur eru búnar verður upplestrarviðburður.
Ritsmiðjurnar er ætlaðar krökkum á aldrinum 12-16 ára sem langar til þess að bæta orðaforða sinn, leika sér með tungumálið og þjálfa sig í skapandi skrifum. Skemmtilegur og spennandi orðaforði verður lagður inn, unnið með efni líðandi stundar, orðasambönd og nýyrðasmíð.
Boðið er upp á fjórar ritsmiðjur:
Borgarbókasafnið Grófinni - mánudagana 3. og 10. febrúar frá kl. 15:30 - 17:30
Borgarbókasafnið Kringlunni - þriðjudagana 11. og 18. febrúar frá kl. 15:30 - 17:30
Ritsmiðja #1 - Grófinni 3. febrúar
Ritsmiðja #2 - Grófinni 10. febrúar
Ritsmiðja #3 - Kringlunni 11. febrúar
Ritsmiðja #4 - Kringlunni 18. febrúar
Hámarks fjöldi á hverju námskeiði: 12 þátttakendur.
Þátttaka er ókeypis en skráning nauðsynleg. Hægt er að sækja eina eða fleiri smiðjur þar sem hver smiðja er kennd sem sjálfstæð eining. Í valmynd má sjá yfirlit yfir þær fjórar ritsmiðjur sem í boði eru.
Berglind Erna Tryggvadóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir leiða ritsmiðjurnar. Þær eru rithöfundar og íslenskukennarar, auk þess sem þær semja námsgögn í íslensku.
Nánari upplýsingar veita:
Berglind Erna Tryggvadóttir
berglinderna12@gmail.com
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115