
Um þennan viðburð
Tími
          17:30 - 18:30
          Verð
        Frítt
        Bókasafn
    
Hópur
    Fyrir öll
      Tungumál
    Íslenska
      Bókmenntir
          Spjall og umræður
      Stefnumót við lesendur | Arndís Þórarinsdóttir, Ása Marin og Margrét Höskuldsdóttir
Miðvikudagur 12. nóvember 2025
      Þér er boðið til stefnumóts við þrjá höfunda þar sem í boði verða upplestrar, sögur og góðar samræður. Þessi stund er tileinkuð sögum sem minna okkur á hversu dýrmætt það er að gleyma sér í góðri bók.
Arndís, Ása Marin og Margrét sýna með verkum sínum að það er list að skrifa góðar bækur sem hreyfa við tilfinningunum án þess að taka lífið of hátíðlega. Þetta er tækifæri til að hitta þær, heyra hvað kveikti hugmyndirnar að bókum þeirra og spjalla við þær.