
Um þennan viðburð
Leshringur | Hansdætur
Í apríl ræðum við skáldsöguna Hansdætur eftir Benný Sif Ísleifsdóttur frá 2020. Hún gerist í vestfirsku sjávarplássi í byrjun tuttugustu aldar og fjallar um Gratíönu, dóttur Evlalíu, einstæðrar móður sem á þrjú börn með þremur mönnum. Gratíana hafnar viðteknum stéttar- og kynhlutverkum í bænum og á sér háleita drauma. Seinna kom út framhaldið Gratíana og Benný Sif hefur skrifað fleiri sögur sem eiga það flestar sameiginlegt að gerast í íslenskum sjávarþorpum.
Hér má lesa ritdóm sem birtist um hana í 3. tölublaði Tímariti Máls og menningar 2021 og hér er viðtal við höfundinn í Kiljunni frá jólabókaflóðinu 2020.
Leshringurinn Sólkringlan hittist venjulega þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17.30-18.30 í Borgarbókasafninu Kringlunni, frá september til maí.
Þema vorsins 2026 er líf íslenskra (og írskra) kvenna á 20. öld. Dagskráin er eftirfarandi:
- • 22. janúar: Leigjandinn eftir Svövu Jakobsdóttur og Smámunir sem þessir eftir Claire Keegan
- • 19. febrúar: Ást á rauðu ljósi eftir Jóhönnu Kristjánsdóttur
- • 19. mars: Bíbí í Berlín, ævisaga Bjargeyjar Kristjánsdóttur eftir Guðrúnu Valgerði Stefánsdóttur
- • 16. apríl: Hansdætur eftir Benný Sif Ísleifsdóttur
- • 21. maí: Elsku Drauma mín, minningabók Sigríðar Halldórsdóttur eftir Vigdísi Grímsdóttur
Umsjón og skráning:
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204