Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Enska
Bókmenntir
Fræðsla

Rými fyrir höfunda | Hvernig hlutirnir eru

Laugardagur 8. febrúar 2025

Komdu og vertu með okkur á fyrirlestri um ágæti tíbeska búddismans, fluttan af Alfonso Costa (Perú), skipulagðan af Félagi Demantsleiðar Búddismans á Íslandi.

Í fyrirlestrinum mun Alfonso útskýra sýn og aðferðir búddismans eins og þeim er lýst í bókinni Hvernig hlutirnir eru eftir Lama Ole Nydahl.

Hvert er mikilvægi búddismans í dag? Hvernig geta kenningar Búdda hjálpað okkur með að opna ýmsa möguleika? Með hugleiðsluæfingum sem lýst er í bókinni, eru þátttakendur hvattir til að kanna öflugar og frelsandi aðferðir tíbeska búddismans.


Um fyrirlesarann:
Alfonso Costa fæddist í Lima í Perú árið 1977. Að atvinnu er hann vínfræðingur og kynntist Lama Ole í Lima árið 2002. Síðan þá hefur hann ferðast árlega með honum til ýmissa landa í Suður-Ameríku og Evrópu.
Árið 2009, í Rússlandi, bað Lama Ole hann um að hefja kennslu í miðstöðvum félagsins um allan heim. Í dag býr Alfonso í Immenstadt í Þýskalandi ásamt fjölskyldu sinni, mjög nálægt Europe Center Demantsleiðarinnar, þar sem Lama Ole dvelur nú.
 



Lama Ole Nydahl er búddistakennari í hefð Karma Kagyu leiðarinnar og hefur stofnað yfir 600 Demantsleið búddistamiðstöðvar um allan heim.
Hann er einn af þekktustu vestrænu búddistakennurunum, og með starfsemi sinni hefur Karma Kagyu hefðin orðið ein vinsælasta búddistaleiðin á Vesturlöndum.

Frekari upplýsingar um Lama Ole Nydahl: www.lama-ole-nydahl.org

 

Öll hjartanlega velkomin.
Athugið að viðburðurinn fer fram á ensku. 

Buddhist Center Reykjavík

 

Nánari upplýsingar á: 
buddismi@buddismi.is