pillow talk interview
Anna Marsibil Clausen spjallar við listakonuna Sonju Kovačević um verkið Koddahjal.

Koddahjal í útvarpinu!

Anna Marsibil Clausen spjallaði við listakonuna Sonju Kovačević um innstetningna, Koddahjal, í útvarpsþættinum Lestinni á Rás 1. Sýningin gefur persónulega innsýn inn í líf hælisleitenda og flóttafólks á Íslandi. Hlustið hér, viðtalið byrjar á mínútu 40:30.

interview of Sonja

Framsetningin er einföld; hátalarar hafa verið settir á samanbrjótanlega bedda, eins og notaðir eru sem rúm fyrir hælisleitendur og úr hátölurum heyrast síðan fjölmargar ólíkar frásagnir. Áhorfandanum býðst að leggjast niður og hlusta. Frásagnirnar hafa verið settar saman af kostgæfni með það í huga til að veita innsýn í líf manneskjunnar sem þær lýsa, og til að gefa áhorfendanum færi á að tengjast „sögu flóttamanns“ á nýstárlegan  hátt. 

pillow talk installation in the library

Sonja Kovačević er austurískur leikhúsframleiðandi sem búsett er á Íslandi. Inn í verk  hennar fléttast áhugi á að skoða mikilvæg umræðuefni í samtímanum og á að skapa leikhús sem brúar bilið milli kenninganna og framsetningarinnar. Upp úr þessari blöndu verður oft til vinna með jaðarsettum hópum í samfélaginu.

Öllum er velkomið að upplifa sýninguna á opnunartíma Borgarbókasafnsins í Grófinni, en innsetningin fer fram á ensku.

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel, Sérfræðingur - Fjölmenningarmál 
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is

Flokkur
UppfærtFimmtudagur, 8. júlí, 2021 13:29