Þorsteinn G. Hilmarsson verkefnastjóri hjá Atvinnutengingu VIRK Rut Ragnarsdóttir deildarstjóri Borgarbókasafnsins Kringlunni
Þorsteinn G. Hilmarsson, verkefnastjóri hjá Atvinnutengingu VIRK og Rut Ragnarsdóttir, deildarstjóri Borgarbókasafnsins Kringlunni.

Borgarbókasafnið Kringlunni útnefnt VIRKT fyrirtæki 2026

Atvinnutenging VIRK hefur útnefnt Borgarbókasafnið Kringlunni VIRKT fyrirtæki 2026. Rut Ragnarsdóttir, deildarstjóri Borgarbókasafnsins Kringlunni, segir mikinn heiður að fá útnefninguna, sem falli vel að gildum og stefnu Borgarbókasafnsins.

„Það er mjög ánægjulegt að fá þessa viðurkenningu frá VIRK og auðvitað mikill heiður,“ segir Rut Ragnarsdóttir, deildarstjóri Borgarbókasafnsins Kringlunni.

Þorsteinn G. Hilmarsson, verkefnastjóri hjá Atvinnutengingu VIRK, leit við á Borgarbókasafninu Kringlunni og afhenti Rut blómvönd og viðurkenningarskjal til staðfestingar um útnefninguna. 

Í rökstuðningi með henni segir m.a. að viðmót og viðhorf Borgarbókasafnsins Kringlunni gagnvart þjónustuþegum atvinnutengingar VIRK, sem í mörgum tilfellum búi við skerta starfsgetu, sé til fyrirmyndar og hafi Atvinnutenging VIRK viljað koma því á framfæri með þessum hætti.

„Framlag ykkar skiptir sköpum og þið sýnið samfélagslega ábyrgð í verki með því að bjóða einstaklingum í atvinnutengingu tækifæri til þess að leggja sitt af mörkum á vinnumarkaði,“ segir að auki í rökstuðningnum. Rannsóknir sýni að þátttaka á vinnumarkaði sé mikilvæg fyrir bæði heilsu og velferð einstaklinga og því mikilvægt að auka þátttöku þessa hóps á vinnumarkaði.

Rut tekur undir það og segir viðurkenninguna falla vel að gildum Borgarbókasafnsins og stefnu. 

„Þar sem við leggjum áherslu á að vera aðgengilegt og samfélagslegt rými, ekki aðeins fyrir gesti safnsins heldur einnig sem vinnustaður þar sem fjölbreyttur hópur fólks fær tækifæri til þátttöku og að vaxa í starfi,“ útskýrir hún. 

„Fyrir okkur er mikilvægt að Borgarbókasafnið sé opinn og styðjandi vinnustaður þar sem fólk fær tækifæri til að taka þátt og leggja sitt af mörkum.“
 

Flokkur
UppfærtMiðvikudagur, 1. apríl, 2026 13:30