tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis 2026

Tíu bækur tilnefndar til Viðurkenningar Hagþenkis 2026

Tíu bækur hljóta tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis í ár, tilkynnt var um tilnefningarnar 4. febrúar í Borgarbókasafninu í Grófinni.  Viðurkenning Hagþenkis verður síðan veitt 4. mars við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni og hún felst í sérstöku viðurkenningarskjali og 1.500.000 kr.

Hagþenkir hefur í tuttugu ár tilnefnt tíu rit en að vali þeirra stendur sérstakt Viðurkenningarráð, skipað fimm félagmönnum til tveggja ára í senn, af mismunandi fræðasviðum. Í því sátu að þessu sinni: Arnþór Gunnarsson, Árni Sigurjónsson, Ásdís Ingólfsdóttir, Ingibjörg Eyþórsdóttir og Kristján Leósson. Verkefnastýra ráðsins er Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra Hagþenkis. 

Ritin verða kynnt af höfundum í Borgarbókasafninu í Grófinni laugardaginn 14. febrúar kl. 13-15 og eru öll hjartanlega velkomin.  
 

Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis 2026

Andri Þorvarðarson. Fjölbraut í 50 ár. Saga Fjölbrautaskólans í Breiðholti 1975–2025. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti.

Umsögn Viðurkenningarráðs: Áhugaverð og lipurlega skrifuð saga fyrsta fjölbrautaskólans á Íslandi, sem jafnframt endurspeglar margvíslegar breytingar sem orðið hafa í samfélaginu síðastliðna hálfa öld.

 

Daníel Bergmann. Fuglar og fuglastaðir. Árbók Ferðafélags Íslands 2025.

Umsögn Viðurkenningarráðs: Frumleg nálgun þar sem fuglaskoðun á einstökum landsvæðum er kynnt og fjallað um fuglaljósmyndun, framlag áhugamanna og fleira. Einstakar ljósmyndir og vönduð kort.

 

Davíð Ólafsson og † Arndís S. Árnadóttir. Mynd & hand. Skólasaga 1939–1999. Sögufélag.

Umsögn Viðurkenningarráðs: Hin merka saga Myndlista- og handíðaskóla Íslands er rakin frá stofnun skólans þar til hann varð hluti af Listaháskóla Íslands. Grundvallarrit í sögu skóla og myndmennta.

 

Einar Falur Ingólfsson. Kristján H. Magnússon. Listamaðurinn sem gleymdist. Veröld.

Umsögn Viðurkenningarráðs: Vandað og glæsilegt verk um myndlistarmann sem hefur fengið takmarkaða athygli. Bókin er byggð á víðtækri rannsókn um verk Kristjáns og æviferil.

 

Garðar Gíslason og Blær GuðmundsdóttirÉg og umheimurinn. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Umsögn Viðurkenningarráðs: Þriðja hefti vandaðs kennsluefnis í samfélagsgreinum fyrir miðstig grunnskóla ásamt góðum kennsluleiðbeiningum á vef. Lipur texti í ríkulega myndskreyttri bók.

 

Kjartan Atli ÍsleifssonSkrifarar sem skreyttu handrit sín. Alþýðulist og skreytingar í handritum síðari alda. Háskólaútgáfan.

Umsögn Viðurkenningarráðs: Frumrannsókn sem varpar nýju ljósi á skreytingar í handritum alþýðuskrifara. Mikilvæg viðbót við rannsóknir á sviði íslenskrar handritamenningar.

 

Kristín Svava Tómasdóttir. Fröken Dúlla. Ævisaga. Benedikt.

Umsögn Viðurkenningarráðs: Vönduð og afar læsileg ævisaga Jóhönnu Knudsen, hugsjóna- og hjúkrunarkonu, sem starfaði meðal annars fyrir umdeilt ungmennaeftirlit á tíma ástandsins svokallaða.

 

Sigfús Jónsson og Sveinn Agnarsson. Sjávarútvegur Íslendinga 1975–2025. Fyrra bindi: Starfsumhverfi og stjórnsýsla. Hið íslenska bókmenntafélag.

Umsögn Viðurkenningarráðs: Greinargott og upplýsandi yfirlit laga og reglna um undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar. Fjallað er meðal annars um kvótakerfið, vinnumarkað, hafrétt og smábátaútgerð.

 

Sigurjón Árni Eyjólfsson. Abstraktmálverkið. Helgimynd íslenskrar menningar á 20. öld? Hið íslenska bókmenntafélag.

Umsögn Viðurkenningarráðs: Frumleg listfræðileg nálgun um tengsl abstraktlistar við framfaratrú og veraldarhyggju  með hliðsjón af hugmyndafræðilegum átökum í víðara samhengi samfélags og trúar.

 

Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir. Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Umsögn Viðurkenningarráðs: Athyglisverð umfjöllun um einstakar rímur sem hafa aldrei áður komið út á prenti. Saga þeirra er rakin í víðu samhengi, greint frá handritum og bent á mögulegan höfund.

Flokkur
UppfærtFimmtudagur, 5. febrúar, 2026 15:04
Materials