
Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026
Tilkynnt hefur verið um hvaða verk og höfundar hljóta tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Á meðal 13 verka og höfunda eru tilnefnd fyrir Íslands hönd skáldverkin og höfundarnir Eldri konur eftir Evu Rún Snorradóttur og Himintungl yfir heimsins ystu brú eftir Jón Kalman Stefánsson.
Úr tilkynningu:
"Það sem sameinar verkin 13 sem tilnefnd eru í ár er að þau horfa til fortíðar en eru um leið nátengd Norðurlöndum nútímans. Þau fjalla um foreldra og börn, kyn og kynvitund og einstaklinginn sem rekur stefnulaust í fljótandi heimi.
Á meðal hinna tilnefndu eru bæði skáldsögur, ljóðasöfn og smásagnasafn. Það sem er óvenjulegt í ár er að bæði norska dómnefndin og dómnefndin fyrir samíska málsvæðið hafa hvert í sínu lagi tilnefnt sama verkið sem í senn er gefið út á norsku og á tornesamísku."

Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026
Danmörk
Mette Moestrup: Butterfly Nebula, ljóðabók.
Charlotte Weitze: Ulvemælk, skáldsaga.
Finnland
Pirkko Saisio: Suliko, skáldsaga.
Quynh Tran: När andra njuter, skáldsaga.
Færeyjar
Marjun Syderbø Kjelnæs: Marta, Marta, skáldsaga.
Grænland
Debora H. Kleist: Sarsuatitat, skáldsaga.
Ísland
Eva Rún Snorradóttir, Eldri konur, skáldsaga.
Jón Kalman Stefánsson: Himintungl yfir heimsins ystu brún, skáldsaga.
Noregur
Dag Johan Haugerud: Sjelesorg, skáldsaga.
Noregur / samíska málsvæðið
Sigbjørn Skåden: Planterhaug / Láŋtdievvá, skáldsaga.
Svíþjóð
Linda Örtenblad: Kartotek över döda och återuppståndna, smásagnasafn.
Álandseyjar
Sebastian Johans: Svanhopp. Roman om död far, skáldsaga.
Frekari upplýsingar um verkin má finna hér
Tilkynnt um verðlaunahafann 20. október
Verðlaunahafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026 verður opinberaður hinn 20. október. Verðlaunagripurinn verður veittur í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Helsinki hinn 27. október. Verðlaunin nema 300 þúsundum danskra króna.
Um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 1962 fyrir fagurbókmenntaverk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Það getur verið skáldsaga, leikverk, ljóðabók, smásagna- eða ritgerðasafn sem uppfyllir strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi.
Markmið hinna fimm verðlauna Norðurlandaráðs er að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi um umhverfismál, svo og að vekja athygli á verkefnum sem skarað hafa fram úr á sviði lista eða umhverfismála.