
Tilnefningar til barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2026
Tilkynnt hefur verið um hvaða verk, myndlýsingar og þýðingar hljóta tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar árið 2026. Fimm bækur tilnefndar í þremur flokkum. Athöfnin fór fram í Mengi við Óðinsgötu. Skúli Þór Helgason, formaður menningar- og íþróttaráðs veitti tilnefningarnar.
Eftirtalin verk voru tilnefnd að þessu sinni:
Frumsamin skáldverk
Blaka, eftir Rán Flygenring, útgefandi: Angústúra
Efri hæðin eftir Jón Lorange, útgefandi: Landasonur
Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, útgefandi: Forlagið / Mál og menning
Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson, útgefandi: Forlagið / Mál og menning
Torf, grjót og burnirót eftir Sigrúnu Eldjárn, útgefandi: Forlagið/Mál og menning
Myndlýsingar
Árstíðarverur, myndlýst af Lynn Janssen, útgefandi: Salka
Ég bý í risalandi, myndlýst af Birnu Daníelsdóttur, útgefandi: Forlagið
Hjartslátturinn hennar Lóu, myndlýst af Lilju Cardew, útgefandi: Bókabeitan
Njála hin skamma, myndlýst af Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur, útgefandi: Bókabeitan
Við, myndlýst af Fanny Sissoko, útgefandi: Karíba
Þýðingar
Sól rís á sláttudegi, íslensk þýðing eftir Magneu J. Matthíasdóttur, útgefandi: Forlagið
Undrarútan, íslensk þýðing eftir Jón St. Kristjánsson, útgefandi: Forlagið
Ferðataskan, íslensk þýðing eftir Ástu Halldóru Ólafsdóttur, útgefandi: Kvistur
Versta vika sögunnar, íslensk þýðing eftir Kristján B. Jónasson, útgefandi: Drápa
Týr, íslensk þýðing eftir Sigríði Ástu Árnadóttur, útgefandi: Forlagið/Mál og menning
Í dómnefnd sátu Sigrún Margrét Guðmundsdóttir formaður, skipuð af Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Salka Guðmundsdóttir,skipuð af Rithöfundasambandi Íslands og Halldór Baldursson,skipaður af Félagi íslenskra teiknara.
Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar verða veitt við hátíðlega athöfn í Höfða,22.apríl og mun Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri afhenda verðlaunin.
Mynd fengin af heimsíðu Reykjavíkurborgar.