Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir, sigurvegarinn Sindra Tul Muntaha og Málfríður, Guðný Inga Eiríksdóttir
Frá vinstri: Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir, sem lenti í þriðja sæti, sigurvegarinn Sindra Tul Muntaha og Málfríður (Guðný Inga Eiríksdóttir) sem var í öðru sæti.

Sigurvegari krýndur á Ljóðaslammi Borgarbókasafnsins 2026!

Það var heldur betur stemning og stuð þegar Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins fór fram í Grófinni. 

Hvorki meira né minna en fimmtán slammarar stigu á svið og kepptu til úrslita og er það mál manna að keppnin hafi sjaldan eða aldrei verið jafn spennandi. 

Dómnefndin hafði því úr vöndu að velja, en að lokum var það Sindra Tul Muntaha sem stóð uppi sem sigurvegari með atriðið „A Ghost, a Lover, a Living Room“. Þar á eftir var Málfríður (Guðný Inga Eiríksdóttir) í öðru sæti með „Brotabrot“ og þriðja sæti hreppti Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir með „VARA VARA: Ljóð um sjálfafgreiðsluvélar“.

Slammið var venju samkvæmt haldið á Safnanótt í Reykjavík.

Dómnefndina í ár skipuðu Salka Valsdóttir, Jón Magnús Arnarsson og Örvar Smárason. Kynnir kvöldsins var Steiney Skúladóttir og á meðan dómnefndin réð ráðum sínum héldu uppistandararnir Andri Ívars og Jennie Egerdie uppi stuðinu.

Borgarbókasafnið þakkar keppendum kærlega fyrir þátttökuna og gestum fyrir komuna á Ljóðaslamm.

Meðfylgjandi myndir, sem Snorri Gunnarsson ljósmyndari Borgarbókasafnsins tók, fanga stemninguna vel.

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Ljóðaslamm 2026

Sindra Tul Muntaha (lengst ti hægri) bar sigur úr býtum með atriðið „A Ghost, a Lover, a Living Room“. Þar á eftir var Málfríður (Guðný Inga Eiríksdóttir, önnur til vinstri) í öðru sæti með „Brotabrot“ og þriðja sæti hreppti Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir (lengst til vinstri) með „VARA VARA: Ljóð um sjálfafgreiðsluvélar“. Að baki þeim sést dómnefndin, frá vinstri: Salka Valsdóttir, Örvar Smárason og Jón Magnús Arnarsson.

 

Flokkur
UppfærtÞriðjudagur, 10. febrúar, 2026 13:29