Ljóðaslamm 2023
Ljóðaslamm Borgarbókasafnins var endurvakið, eftir nokkurra ára hlé, á Safnanótt þann 3. febrúar 2023. Fimm keppendur á aldrinum 16-25 ára tóku þátt. Sunna Benjamínsdóttir Bohn fór með sigur úr býtum að þessu sinni með ljóðinu Hvernig á að gera ljóðaslamm - Leiðbeiningar.
Atriði Sunnu má sjá í spilaranum neðst á þessari síðu
Ljóðaslamm felst í flutningi frumsamins ljóðs þar sem flutningurinn er jafn mikilvægur og ljóðið sjálft. „Hefðbundinn“ ljóðaupplestur telst því ekki til ljóðaslamms, heldur er flutningurinn ákveðinn tegund af performans.
Keppendur ársins voru fimm:
- Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir,
- Embla Hall,
- Lil Birdie (Ingibjörg Birta)
- Sparkle (Sindri Freyr Bjarnason)
- og Sunna Benjamínsdóttir Bohn.
Sigurvegarinn var sem fyrr segir Sunna Benjamínsdóttir Bohn. Embla Hall lenti í öðru sæti og Sparkle (Sindri Freyr Bjarnason) því þriðja.
Sérstakur verðlauna- og farandbikar var hannaður af hönnunarteyminu Flétta, sem sérhæfir sig m.a. í að endurhanna nýja verðlaunagripi úr gömlum.
Dómnefnd skipuðu: Ljóðaslammarinn Jón Magnús Arnarsson, Steinunn Jónsdóttir úr Reykjavíkurdætrum og fyrir hönd Borgarbókasafnsins Örvar Smárason, sem er einnig meðlimur í hljómsveitunum FM Belfast og MÚM.
Kynnir kvöldsins var Valgeir Gestsson.