Ungmenni
Tölvuleikjagerð | 13-16 ára
Laugardagur 30. október 2021
Skema í HR heldur örnámskeið í tölvuleikjahönnun með Python.
Python er eitt vinsælasta forritunartungumál heims og hentar vel fyrir byrjendur í forritun og upprennandi tölvuleikjahönnuði. Farið verður yfir grunninn í forritunartungumálinu og kennt hvernig á að skrifa kóða. Við lærum að nýta Python-kóða við hönnun okkar eigin tölvuleikja.
Smiðjan er fyrir 13-16 ára. Tölvur verða á staðnum en þátttakendum er líka velkomið að koma með sínar eigin.
Þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir: Magnús Örn Thorlacius
magnus.orn.thorlacius@reykjavik.is | 4116160