Um þennan viðburð
Ritþing | Stefnumót við Braga Ólafsson
„Á horni Bayswater Road og Lækjargötu“
Stjórnandi: Guðrún Lára Pétursdóttir
Spyrlar: Kristín Svava Tómasdóttir og Einar Falur Ingólfsson
Flytjendur: Eggert Þorleifsson, Una Sveinbjarnardóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir
Ritþing hafa verið haldin í Gerðubergi frá árinu 1999 og eiga sér fastan sess í menningarlífi borgarinnar. Á ritþingi situr rithöfundur fyrir svörum stjórnanda og tveggja spyrla í léttu og persónulegu spjalli, leikin er lifandi tónlist sem tengist höfundi og lesið upp úr verkum hans. Á þennan hátt gefst lesendum og áheyrendum einstakt tækifæri til að öðlast persónulega innsýn í líf og feril rithöfundarins, kynnast persónunni á bakvið verkin, viðhorfum höfundar og áhrifavöldum.
Skráning hér fyrir neðan.
Á Bókmenntavefnum er að finna yfirlit yfir höfundaverk Braga ásamt greinum og ritdómum.
Sjá einnig vefsíðu höfundar.
Ritþing eru hljóðrituð og gefin út rafrænt á heimasíðu Borgarbókasafnsins. Þingin eru því ekki aðeins ánægjuleg upplifun þeirra sem hlusta á staðnum heldur einnig varanleg heimild. Í hlaðvarpi RÚV er einnig að finna upptökur frá ritþingum.
Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Borgarbókasafnið býður til móttöku að ritþingi loknu.
Nánari upplýsingar veitir:
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, verkefnastjóri bókmennta
halla.thorlaug.oskarsdottir@reykjavik.is