
Um þennan viðburð
Sumarsmiðja | Repüp textílsmiðja
Lærum að umbreyta og bæta föt á skapandi hátt!
Listakonan Eva Ísleifs leiðir smiðju þar sem ungmenni innsýn í sjálfbæra fatasköpun og leiðarlýsingu á hvernig er hægt að umbreyta og bæta föt á skapandi hátt. Þátttakendur vinna síðan að eigin flík. Notast verður við saumavélar og málningu. Grunnþekking í handavinnu er kostur en ekki nauðsynleg, þar sem aðferðirnar eru aðgengilegar og nýtast vel í áframhaldandi listsköpun og fatahönnun.
Repüp er fatamerki eftir Evu Ísleifs. Nafnið Repüp er innblásið af enska hugtakinu Re-Purpose, sem vísar til endurnýtingar og þess að gefa hlutum nýtt hlutverk. Í hönnun sinni leggur Eva áherslu á sjálfbærni og hringrásarhagkerfi, þar sem hver flík er einstök og unnin með umhverfið að leiðarljósi.
Smiðjan stendur yfir í tvo daga 2 - 3 júlí milli kl 13:00-15:00
Aldur: 2010, 2011, 2012 og 2013
Skráning hefst 28. apríl kl. 13 á Abler (skráningarhlekkur væntanlegur).
Borgarbókasafnið er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411-6170