
Um þennan viðburð
Tími
10:00 - 17:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Börn
Tungumál
-
Börn
Vekjum vorið | Leitin að lóunni – ratleikur
Laugardagur 18. apríl 2026
Nokkrar lóur hafa komið sér vel fyrir í Gerðubergi, getur þú fundið þær allar?
Þau börn sem finna allar lóurnar og skila lausnarorðinu í afgreiðslu bókasafnsins fá glaðning.
Viðburðurinn er hluti af vorhátíð Fríbúðarinnar í Gerðubergi: Vekjum vorið. Með hátíðinni erum við að fagna hringrásinni og í boði eru viðburðir sem tengjast hinum ýmsu vorverkum. Í Fríbúðinni í Gerðubergi eru allir hlutir ókeypis, þangað er hægt að koma með hluti í góðu ástandi sem nýtast ekki lengur og taka heim með sér það sem vantar.
Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdóttir@reykjavik.is | 411-6170