
Um þennan viðburð
Sögustund við varðeld | Örn Árnason les Blómin á þakinu
Verið velkomin á notalega útisögustund þar sem við kveikjum lítinn varðeld og njótum útiverunnar. Hægt verður að ylja sér með heitu kakói á meðan Örn Árnason les fyrir okkur hina sígildu bók Blómin á þakinu.
Það þarf vart að kynna bókina Blómin á þakinu en hún hefur unnið sér sess sem sígild perla innan íslenskra barnabókmennta. Höfundur bókarinnar er Ingibjörg Sigurðardóttir og Brian Pilkington er myndhöfundurinn. Sagan fjallar um Gunnjónu sem flutti sveitina með sér í bæinn. Örn Árnasson var meðal þeirra sem settu söguna upp á svið Þjóðleikhússins þar sem sýningin heillaði leikhúsgesti á öllum aldri. Nú mun hann lesa fyrir okkur bókina við lítinn varðeld.
Sögustundir við varðeld er viðburðaröð sem hlaut styrk frá Bókasafnasjóði. Sögurnar munu allar tengjast náttúrunni á einn eða annan hátt og leitast verður við að skapa eftirminnilega söguupplifun í takt við veður og vinda.
Hittumst úti fyrir framan neðri inngang Gerðubergs og klæðum okkur eftir veðri.
Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411-6170