Um þennan viðburð

Tími
19:30 - 21:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Íslenska
Fræðsla

make-a-thek | Fataskápurinn og hringrásarhagkerfið

Miðvikudagur 25. mars 2026

Hvernig getum við verið ábyrgir fatakaupendur og notendur?  Er endurunnið pólýester umhverfisvænna en bómull? Hvað verður um fötin okkar þegar við hættum að nota þau? Af hverju líður okkur eins og sum föt séu framlenging af okkur sjálfum? 

Ragna S. Bjarnadóttir, lektor og fagstjóri við fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands flytur erindi og leiðir spjall um textílefni, fatnað, fataskápinn og hringrásarhagkerfið.  

Viðburðurinn fer fram á íslensku. 

 

Borgarbókasafnið Gerðubergi er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.  

  Viðburðurinn á facebook

Nánari upplýsingar veitir:  
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi  
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170