Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
3 ára og eldri
Tungumál
íslenska
Börn

Sögustund | Múmínsnáðinn og vorundrið

Þriðjudagur 5. maí 2026

Það er vetur í Múmíndal og Múmínfjölskyldan liggur í djúpum vetrardvala og bíður þess að Tikka-Tú veki hana þegar vorar, en Múmínsnáðinn hrekkur upp við dularfullt skrölt og skelli. Tekst honum að herða upp hugann og kanna hávaðann upp á eigin spýtur? Og hvaða undur bíða hans ef hann fer út fyrir hússins dyr? 

Verið velkomin í notalega sögustund á bókasafninu þar sem lesin verður góð saga uppfull af ævintýrum. Eftir lesturinn dundum við okkur aðeins, púslum, teiknum eða litum og höfum það notalegt saman.  

Sögustundirnar í Borgarbókasafninu Árbæ fara fram fyrsta þriðjudag í mánuði frá janúar til og með maí.   

Öll velkomin. 

Viðburður á Facebook 

Nánari upplýsingar veitir:  
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur  
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250