Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
3 ára og eldri
Tungumál
íslenska
Börn

Sögustund | Týr

Þriðjudagur 7. apríl 2026

Áhugasamasti nemandinn í drekaskólanum, hann Týr, þráir ekkert heitar en að læra að fljúga, öskra og spúa eldi eins og alvöru drekar gera. En allt gengur á afturfótunum þar til hann eignast hjálpsama vinkonu.

Verið velkomin í notalega sögustund á bókasafninu þar sem lesin verður góð saga uppfull af ævintýrum. Eftir lesturinn dundum við okkur aðeins, púslum, teiknum eða litum og höfum það notalegt saman. 

Sögustundirnar í Borgarbókasafninu Árbæ fara fram fyrsta þriðjudag í mánuði frá janúar til og með maí.  

Öll velkomin.

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar veitir: 
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur 
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250