Daria Aichinger
Daria Aichinger

Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 17:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Enska
Fræðsla
Spjall og umræður

Fyrirlestur | Búddismi í nútímanum

Föstudagur 21. nóvember 2025

Félag demantsleiðar búddismans kynnir röð opinberra fyrirlestra í tilefni Kvennaársins og 15 ára afmælis Demantsleiðar búddismans á Íslandi. 

Búddismi í nútímanum
Föstudaginn 21. nóvember kl. 16:00 - 17:00 

Bókakynning | View, Meditation and Action eftir Hannah Nydahl
Laugardaginn 22. nóvember kl. 15:00 - 16:00 

Samkennd og viska
Sunnudaginn 23. nóvember kl. 15:00 - 16:00

Daria Aichinger (Rússland/Kanada) flytur tvo fyrirlestra um tíbeska búddisma þar sem konur í búddisma eru í brennidepli og kynnir bókina View, Meditation and Action eftir Hannah Nydahl. 

Daria kynntist kennara sínum, Ole Nydahl, og tók sér formlega búddistaathvarf árið 1999 í Rússlandi. Hún flutti til Kanada árið 2001 til að stofna Félag demantsleiðar búddismans í Toronto. Frá 2006 hefur hún ferðast sem kennari undir leiðsögn Ole Nydahl og tekið þátt í uppbyggingu búddistamiðstöðva í Rússlandi, Kanada, Ástralíu og Bandaríkjunum. Daria býr í Immenstadt í Þýskalandi, nálægt alþjóðlegu miðstöð Demantsleiðarinnar. 

Öll hjartanlega velkomin. 
 

Nánari upplýsingar:
buddismi@buddismi.is | 868 5274
Sjá heimasíðu félagsins hér