Um þennan viðburð

Tími
11:00 - 11:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
Íslenska
Börn

Sögustund | Felix Bergsson les Ævintýri Freyju og Frikka

Laugardagur 13. desember 2025

Felix Bergsson heimsækir okkur og les upp úr nýrri bók sinni og syngur með krökkunum! 

Nú á dögunum kom út barnabók eftir Felix Bergsson um Ævintýri Freyju og Frikka. Sagan heitir Drottningin af Galapagos og er fyrsta ævintýrið í bókaflokknum sem er að koma út á vegum Drápu. Áður höfðu þessar sögur komið inn á Storytel en aldrei sést á bók áður. Sögurnar um Freyju og Frikka fjalla um skemmtilega 11 ára tvíbura sem ferðast með foreldrum sínum á óvenjulega staði og lenda jafnan í háskalegum ævintýrum. Í fyrstu sögunni liggur leiðin alla leið til Galapagos til að sigla á milli eldfjallaeyja á Drottningunni af Galapagos. Fljótlega kemur í ljós að einhver farþeganna er með óhreint mjöl í pokahorninu og glæpur gegn stórkostlegu en viðkvæmu dýralífi eyjanna er í uppsiglingunni. Enginn trúir börnunum og því þurfa þau að taka til sinna ráða. Mjög er vandað til útgáfunnar og bókina prýða frábærar myndir eftir Kára Gunnarsson. Bækurnar eru ætlaðar krökkum sem elska spennandi ævintýri og eru tilvaldar til lesturs fyrir þau sem eru farin að geta lesið sjálf.

Öll eru velkomin í gæða og gleðistund á bókasafninu!

 

Sjá viðburð á facebook

 

Nánari upplýsingar veitir: 
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur 
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is  | 411-6170